RFV - Hausmynd

RFV

Gamli strætóinn

Á 17.júní sá ég þennan gamla strætisvagn. 

Vagninn kom til landsins fyrir rúmum 40 árum þegar við tókum upp hægri umferð.

Strætisvagnarnir sem voru notaðir á undan hentuðu illa eftir breytingu því farþegar vildu frekar fara út á gangstétt en götu.

Þessi vagn mynnti mig á þann tíma þegar ég var að taka strætó í fyrsta skipti.  Í þá daga þótti hann gamall.

Þetta var á þeim tíma sem ég skildi leiðarkerfið og bílstjórarnir voru í bláum einkennisbúningum með kaskeiti.

Á þessum tíma fór leið 4 Hagar - Sund.

Í dag fer Fjarkinn Hlemmur - Fell. 

Ég lendi alltaf í stórvandræðum þegar ég þarf að taka strætó.  Ég veit aldrei hvaða vagn fer hvert og hvar ég á að taka hann.

IMG 1370

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband