RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Kýr

Sá þessa kú í fjósi.

Rétt hjá henni stóð kálfur.

Hann var út úr kú.

IMG 4003

Fréttir

Í hvert sinn sem eitthvað merkilegt gerist hópast að fólk til að skoða.

Ef það er nógu merkilegt þá hópast að menn með ofvaxnar myndavélar á öxlinni.

IMG_4314

Slökkt í Hörpu

Í gær sá ég þykkan reyk og mikinn stíga upp frá Hörpu.

Stuttu síðar var slökkviliðið mætt á staðinn og eldurinn varð að minningu og sóti.

IMG_4429

Landnámshænur

Flestar hænur á Íslandi eru hvítar.  Það sæist líklegast enginn munur ef myndir af þeim væru í svarthvítu.

Lítill minnihlutahópur af þeim eru landnámshænurnar.

Þær eru í lit.

IMG 4200

Gömlu tækin

Á síðustu öld, áður en rúllubaggar fóru að vaxa á túnum landsins nýttu bændurnir önnur tæki.

Hér eru ágæt dæmi um eldri tæki sem í dag safna ryði og mosa.

IMG 4132

IMG 4118


Sveitahundurinn

Á öllum sveitabæjum eru hundar.

Áður fyrr voru bara bara íslenskir fjárhundar en í seinni tíð hafa erlendir hundar komið í þeirra stað.

IMG 4076

Bragginn

Um miðja síðustu öld voru braggar um allt land.

Heilu hverfin yfirfull af bröggum.

Svo var bröggunum rutt til hliðar í skiptum fyrir mannsæmandi húsnæði.

Það eru nokkrir braggar á við og dreif um landið en ég held að það búi ekki nokkur maður í þeim.

En þetta er fínustu skemmur.

IMG 4104

Kálfurinn

Kálfurinn lét fara vel um sig í heyinu.

Kúnni virtist vera sama þótt hann lægi í matnum.

IMG 3985

Endurunnið

Þótt eitthvað hafi verið búið til, til að vera eitthvað ákveðið og reynst vel í því hlutverki.

Er ekkert sem segir að það sé ekki hægt að finna ný not seinna meri.

Þessi sumarbústaður hóf sína daga sem rúta á síðustu öld en settist svo að í Skagafirði.

ruta

Brú

Brýr þurfa ekki alltaf að vera sléttar, beinar eða nýjar.

Oft er nóg að hún nái milli bakka.

brú

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband