RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Skilti

Mér þykir merkilegt að það skulu vera til tvö skilti sem eru ekkert lík en merkja það sama.

Annað merkilegra er að einhverjum hafi dottið í hug að setja þau svona nálægt hvort öðru.

IMG_6059

Bað

Sumir eru framkvæmdaglaðari en aðrir.

Ég veit ekki hversu framkvæmdaglaður eigandi þessa baðkars er.

Það eina sem ég veit er að hann framkvæmdi flutning á baðkarinu út í garð.

IMG_6050

Rist

Þegar ég horfði á þessa rist hugsaði ég ekki um það hvort loftið færi inn eða út.

Sú hugsun kom síðar.

IMG_6109

Seðlabankinn

Á síðustu öld sagði maður að í Seðlabankanum væri fjöldi manna sem gerði ekkert annað en naga blýanta.

Blýantarnir eru örugglega allir uppnagaðir í dag.

IMG_6162

Er þetta list?

Það hefur verið sagt að í Listaháskólanum sést oft maður standa og horfa spyrja.  "Er þetta list eða er þetta rusl?"

Þetta er hreingerningamaður skólans.

Fyrir utan skólann sá ég þessi kefli.

Ég þurfti ekki að spyrja.

IMG_6128

Dyr

Sú var tíð að þessi rimlahurð lokaði inngang að banka milli fjögur og níu alla virka daga og allan sólarhringin um helgar.

Í dag loka þessir rimlar inngang að tómum sal sem geymir fátt annað en ryk.

IMG_4383a

Svartsýni

Kannski er ég bara svona svartsýnn en ég óttast að snjórinn sé orðin að svarthvítri minningu fram að næsta vetri.

IMG_4198

Skrúfan

Venjulega sést skrúfan ekki.

Ég sá þennan bát sem var eins og fiskurinn. 

Á þurru landi.

IMG_5941

Vor

Veðurfræðingar segja að vorið sé komið.

Lóan er kominn að kveða burt það litla sem eftir er af snjónum.

Ég bíð eftir að lundinn komi af sjónum.

IMG 3087

Hvað verður um?

Hvað verður um þetta hvíta þegar snjórinn bráðnar?

IMG 4586

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband