RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Fuglabjarg í borg

Margir fuglar eiga heima í björgum við sjóinn.

Þegar fuglabjargið er ekki á staðnum frá náttúrunnar hendi nýta fuglarnir það sem mennirnir hafa gert.

IMG_8851

Garðskraut

Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt að rétta garðskrautinu.

Á meðan það er hægt stinga mold og blómum í skrautið, er það nóg.

IMG_5760

Norðurljós

Í gærkvöldi voru kjöraðstæður fyrir norðurljós.

Fyrir utan að það var skýjað.

nordurljos4
Þessi mynd var ekki tekin í gærkvöldi.


Hurð

Stundum velti ég því fyrir mér hvað sé á bak við hverjar dyr.

Á bak við þessar dyr ætti að það að vera augljóst.

Eða hvað?

IMG_9569

Miðnesheiði

Á Miðnesheiði er þorp sem áður var í útlöndum.

Nú er þorpið komið til Íslands.

Sum húsin fengu lit við flutninginn.

IMG_9683

Hafnargarður

Hann lætur ekki mikið yfir sér en allir sem koma siglandi í Reykjavíkurhöfn sjá hann.

Hafnargarðurinn sem hefur lengur en elstu menn muna skilið á milli sjávar og hafnar.

IMG_9645

Bárujárn

Það er sama hvað hver segir um hvað sé hið íslenska einkenni í byggingalist.

Frá því bárujárnið kom til landsins fyrir um 100 árum hefur bárujárnið verið íslenskasta einkennið af þeim öllum.

Ég hef hvergi í heiminum séð eins mörg hús með bárujárnsþök og jafn marga veggi klædda bárujárni.

Það er óhætt að segja að bárujárnið hafi tekið við af torfi sem íslenska þakið.

IMG_9664

Stiginn

Brunastigar eru eitt af því sem ég vona að þurfi aldrei að nota í því sem þeir eru ætlaðir til.

Það breytir því samt ekki að vel staðsettur brunastigi getur farið hverri byggingu vel.

IMG_9577

Gosbrunnar

Það eru ekki margir gosbrunnar í Reykjavík.

Á Tjörninni er einn sem mér þykir lítill og ræfilslegur.  Inni í Perlunni er annar sem er ekki heldur mjög stór en samt er hann glæsilegri en sá á Tjörninni.

Ég veit ekki um marga staði annarstaðar í heiminum þar sem gosbrunnar eru glæsilegri innandyra en utan.

IMG_9487

Öðruvísi

Oft þarf ekki mikið til að skera sig úr hópnum.

Þessi er alveg einstök.

IMG_9571

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband