RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Máfur

Ég hef aldrei haft neitt á móti máfum.

Máfar eru flottir fuglar sem fljúg glæsilega um himininn.

En máfar eru eins og þorskar.

Þeir eiga heima á sjónum, ekki á landi.

IMG_9582

Gaddavír

Í kringum höfuðstöðvar Sorpu er verkleg gaddavírsgirðing.

Líklegast til að varna ruslinu að sleppa í burtu.

IMG_9540

Ljósastaurinn

Gamli ljósastaurinn lýsti ekki.

Það er samt eitthvað við hann.

IMG_9542

Gamla verksmiðjan

Ég átti leið framhjá gömlu áburðarverksmiðjunni.

Ég held að það þurfi fleiri ruslabíla til að taka hana í burtu.

IMG_9529

Gúmmíbáturinn

Það þarf ekki stóran bát eða öflugar græjur til að geta siglt um sjóinn.

Hér kemur lítill gúmmíbátur að landi á næstum því sléttum sjó.


Horfna merkið

Þrátt fyrir að Sovétríkin séu ekki lengur til og Rússar hættir að vera kommúnistar og orðnir kapitalistar þá er ekki alveg búið að hreinsa upp öll ummerkin.

Á postulínsverksmiðju í Pétursborg eru hamarinn og sigðin en á sínum stað.


Glampi

Á góðum degi kemur fallegur glampi á vatnið.

Það er eitthvað svo lifandi við vatnið.


Kanínan

Það eru fá dýr sem ná að fjölga sér eins hratt og kanínan.

Það er einföld skýring á því.

Það er ekki nokkurt annað dýr sem er á matseðli jafnmargra annarra dýra og kanínan.


Stíflan

Uppáhalds göngubrúin mín er Elliðaárstíflan. 

Mér er með öllu ómögulegt að fara framhjá stíflunni án þess að ganga yfir hana.


Garðskraut

Ég hef nokkrum sinnum sagt frá hrifningu minni á endurunnu garðskrauti.  Landbúnaðartæki hafa þar verið ofarlega á blaði.

Það er svo margt annað sem hægt er að nýta sem garðskraut.

Það þurfa ekki allir garðar að vera eins.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband