RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Rauðhólana aftur heim

Á leiðinni austur fyrir fjall er ekið framhjá Rauðhólum.

Nafnið fengu þeir vegna þess að þetta eru rauðir hólar.

Á fyrrihluta síðustu aldar voru hólarnir fleiri og stærri.  Þegar Reykjavíkurflugvöllur var byggðir voru margir hólarnir fluttir í Vatnsmýrina og nýttir í undirlag.

Ef flugvöllurinn verður einhvern tíman fluttur í burtu vona ég að Rauðhólarnir verði fluttir aftur heim.


Viðey

Ég tók eftir því að það er eitthvað meira í Viðey en friðarsúla.

Þar er meðal annars hús, kirkja og bryggja.


Ormurinn langi

Á sunnudögum minnir umferðin til Reykjavíkur mig oft á langan upplýstan orm sem skríður áfram eftir jörðinni.


Sólfarið og friðarsúlan

Friðarsúlan passar vel sem viðbót við Sólfarið.

IMG_2976

Skylmingar norðurljóss og friðarsúlu

Þegar fyrsta stjörnustríðsmyndin var sýnd í bíó sá ég geislasverð í fyrsta skipti.  Sverð sem var búið til úr ljósi.

Geislasverðin fengu nýja merkingu í gærkveldi þegar ég sá norðurljósin skylmast við friðarsúluna.

Friðarsúlan virtist hafa unnið þessa umferð því fljótlega dofnuðu norðurljósin og hurfu alveg.


Foss

Á hverju vori má sjá Borgarstjórann standa við þennan foss að kasta flugum eða drekkja möðkum.


Gamla brúin

Neðsta brúin yfir Elliðaárnar virkar alltaf hálf lítil við hliðina á brúnni við hliðina.

Þess vegna finnst mér hún njóta sín betur úr hinni áttinni.


Kastalar

Á Íslandi eru engir alvöru kastalar.  Risahallir með stórum turnum og vindubrú.

Þess í stað verðum við að láta okkur næga ljóta turna á verksmiðjum og færibönd sem fá á sig einhvern ævintýrablæ í réttri birtu.


Eldsteikt

Ég hef alltaf verið mikið fyrir grillaðan mat. 

Ég veit fátt betra en að setja lambakjöt á grillið.

Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það eigi að koma smá eldur undir kjötinu.  Það gefur gott aukabragð.

Um helgina fékk ég mér kótelettur.

Hugsanlega varð eldurinn aðeins of mikill.  En maturinn bragðaðist vel.

grill

Blokk

Um alla borg eru að spretta upp blokkir.  Misfallegir steinkumbaldar. 

Mér þykir skorta glæsileikan í íslenskar blokkir.

Þessa glæsilegu blokk sá ég í Edinborg.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband