RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Betri not

Fyrir nokkrum árum komu tveir veiðifélagar mínir með ofvaxna sundhringi í Hítarvatn sem þeir ætluðu að nýta til veiða á vatninu. 

Aflinn varð ekki eins og til stóð svo þeir ákváðu að fynna betri not fyrir sundhringina.


Óperuhúsið

Í Danmörku ákvað gamall maður að gefa dönsku þjóðinni nýtt óperuhús.

Eina skilyrðið var að hann vildi ákveða staðin og hvernig húsið liti út að utan og innan.

Ég fór upp í Marmarakirkjuna og skoðaði húsið frá hærri stað.

Þá var allt í beinni línu. 

Húsin við hringtorgið þar sem Margrét Þórhildur býr og nýja óperuhúsið.  Á milli er lítill almenningsgarður með gosbrunn sem gamli maðurinn hafði gefið drottningunni sjálfum sér til dýrðar.

Svona á að tryggja að allir munu muna eftir þér.


Óþekkta brúin

Brúin yfir Leirvogsá er líklegast sú brú sem flestir aka yfir án þess að hafa nokkurn tíman séð.


Læðst í grasinu

Kötturinn læðist um grasið í leit að ævintýrum og smáfuglum.

Eftir að hafa fundið ævintýrin fór hann út í mýri og setti á sig stýri.


Gott útsýni

Ég er sannfærður um að vilji maður fá gott útsýni yfir sjóinn er langbest að flytja í vita.


Lundi

Einhvern tíman var mér sagt að lundinn væri fugl með alltof litla vængi og of stóran mislitan gogg.

Það er hugsanlega rétt.

En þetta er flottur fugl.


Kúbismi

Einhvern tíman var útskýrt fyrir mér að kúbismi væri listastefna þar sem menn notuð  mikið reglustikur.

Þetta sá ég í grennd við Keflavíkurflugvöll.

Hvort þetta sé kúbískt listaverk eða radar er ég ekki alveg viss.


Dúfnakofinn

Eitt sinn ákváðu nokkrir framtaksamir ungir menn að byggja sér dúfnakofa.

Þeir söfnuðu saman byggingarefni og hófu smíðar.

Til að forðast válind veður var ákveðið að vera frekar inni við smíðarnar og flytja svo húsið út þegar það væri tilbúið.  Þess vegna komu þeir sér fyrir inni í þvottahúsi heima hjá einum þeirra.

Þegar dúfnakofinn var tilbúin gerðu drengirnir sér grein fyrir því að það var alveg sama hvernig kofinn snéri.  Kofinn var alltaf stærri en þvottahúshurðin.

Þá var dúfnakofinn tekinn í sundur og aldrei settur saman aftur.


Vatn

Oft þarf ekki mikið til að gleðja hunda.

Það nægir að sprauta vatni nálægt Emblu.

Hún reynir að grípa dropa þegar þeir fara framhjá.

IMG_1228

Kirkjan klædd

Það er reglulega verið að klæða hús með ýmsum aðferðum.

Stundum er það til bóta en stundum ekki.

Ég held að græna kápan á Hallgrímskirkju sé ekki til bóta.

IMG_1116

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband