RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Flýtur

Oft skiptir ekki máli hversu stór báturinn er til að geta veitt af honum.

Það sem skiptir mestu máli er að hann flýtur.


Á verði

Helsta vandamál við íslenska varðhunda er að þeir eru flestir alltof vinalegir.

Þetta er varðhundur sem mig langar til að klappa.

Ef hann er þá varðhundur?

IMG_1658

Hvað er hesturinn að gera í garðinum?

Fyrst þegar ég sá hestinn á beit í garðinu fór ég að velta fyrir mér hvað hann væri að gera þarna.

Svo rifjaði ég upp svar sem Lína Langsokkur gaf þegar hún var spurð sömu spurningar.

"Hann myndi bara þvælast fyrir í stofunni."

IMG_1676

Gott útsýni

Hver er tilgangurinn með því að hafa sjávarútsýni og loka svo fyrir það.

Ef hundurinn væri örlítið minni myndi hann missa af því öllu.

IMG_1639

Köttur

Kötturinn gekk ákveðin áfram.

Ég smellti af mynd og færði mig áður en ég var gengin niður.


Dróttkvætt hús

Á fyrri hluta síðustu þúsaldar fóru margir á fund Noregskonungs og fluttu fyrir hann dróttkvæðar vísur. 

Oft þurfti konungur að spyrja ráðgjafa sína hvort þetta væri vel ort áður en hann gat hrósað skáldinu.

Sum hús virðast vera dróttkvæð. 

Ég sá þetta hús fyrir nokkrum árum í Birmingham.

Ég hef ekki hugmynd hvaða hús þetta er eða hvað fer fram inni í því.

En ég veit að þetta er eitt af þeim húsum sem þú þarft að hafa vit á arkitektúr til að vita hvort það sé flott eða ekki.

Sjálfur er ég ekki viss svo ég ætla að finna arkitekt og spyrja hann.

DSCF0032

Sjóstöng

Nú eru bara nokkrir dagar í að ég komist á sjóinn að veiða.

Ég er búin að taka saman dótið og setja við hurðina tilbúin að hlaupa af stað.


Lundinn léttir lund

Á hverju sumri fer ég og heimsæki lundann á Bjargtöngum.

Það léttir alltaf yfir mér þegar ég sé fyrsta lunda sumarsins.


Öldur

Öldur hafa ferðast um hafið svo lengi sem jörðin sjálf man eftir.

Ég fer oft í fjöruna og horfi á þær koma á land.

Flestar öldurnar eru alveg meinlausar.

Það er stóra aldan sem kemur í fjórða hvert skipti sem þarf að passa sig á.


Fokið í flest skjól

 Í gær var lognið á hraðferð.

Vindurinn blés þar sem oftast er skjól.

Ég skrapp niður á höfn og skoðaði öldurnar í höfninni sem venjulega er mun sléttari en þetta.

IMG_1578
IMG_1590

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband