Laugardagur, 12. nóvember 2011
Vetrarhljóð
Ég fæddist um vetur og hef alla tíð verið ánægður með veturinn og flest sem honum fylgir.
Ég er ánægður með frostið og snjóinn.
Vetrinum fylgja líka skemmtileg hljóð.
Marrið undan fótatakinu í frostinu, Hvinurinn í skafrenningnum og brakið í trjánum þegar sjórinn sest á greinarnar.
Eitt vetrarhljóð er mér þó ekki að skapi.
Hvinurinn í nagladekkjum.
Verra er að vita að því hærri sem hvinurinn er því slitnari eru dekkin, því meira tæta þau upp malbikið og því minna gagn gera þau þegar á reynir.
Veturinn væri fullkominn ef engin væru nagladekk undir bílunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 11. nóvember 2011
Hjóla
Þegar ég hjóla og horfi á bílaumferðina silast áfram hugsa ég til þeirra sem eru fastir í umferðinni á leiðinni í líkamsræktarstöðina svo þeir geti hjólað á kyrrstæðu hjóli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. nóvember 2011
Ósýnilegur
Margir hafa hugsað um kosti þess að vera ósýnilegur. Geta gert það sem manni langar án þess að nokkur sjái til.
Ég hugsaði líka þannig sem barn. Svo las ég sögu í blaði sem breytti skoðun minni á að vera ósýnilegur algerlega.
Blaðið sem ég las var Andrés Önd. Það var saga um 176-671 og hina Bjarnarbófana. Þar höfðu þeir eignast tæki sem gat gert þá og allt sem þeir vildu ósýnilegt. Þeir gengu inn í bankann óséðir, inni í peningahvelfinguna gerðu peningana ósýnilega og gengu út með fulla poka fjár. Og enginn sá til þeirra. Þeir settust inn í bílinn sinn sem líka var ósýnilegur og óku á brott. Óséðir.
Þetta hefði heppnast hjá þeim ef annar bíll hefði ekki ekið í veg fyrir þá svo þeir lentu í árekstri.
Bjarnarbófarnir skildu ekkert í því af hverju maðurinn hafi ekið í veg fyrir þá en svo rann upp fyrir þeim ljós.
Hann ók í veg fyrir þá vegna þess að hann sá þá ekki.
Ég lærði af þessu og ég passa mig á því að vera ekki ósýnilegur þegar ég hjóla í og úr vinnu. Á hjólinu eru glitaugu, skært hvítt ljós að framan og blikkandi rautt ljós að aftan. Ég er með endurskinsborða á löppunum og klæddur neongrænu vesti með stórum endurskinsborðum.
Ég er jafn áberandi í umferðinni og upplýst jólatré.
Fyrir mér er þetta mjög augljóst. Ég vil að ökumenn og aðrir sjái mig og fari framhjá mér hvar sem ég er.
Þegar ég hjóla í myrkrinu, eins og ofvaxið endurskynsmerki með blikkljósum, þarf ég oft að leggja mig allan fram við að hjóla ekki aðra niður.
Fólk sem augljóslega hefur ekki lesið sama Andrésblað og ég.
Fólk sem er ósýnilegt í umferðinni.
Ósýnilegt fólk sem leggur sjálft sig og aðra í stórhættu á hverjum degi.
Fólk sem augljóslega gerir sér ekki grein fyrir því að stærsti ókostur þess að vera ósýnilegur er sá að það sér þig enginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. nóvember 2011
Biðstöð
Þótt sjónvarpið sé farið að koma með kapli inn í húsið til mín get ég ekki fengið mig til að taka gamla loftnetið niður.
Ef loftnetið fer, hvar eiga þá fuglarnir að hvíla sig?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. nóvember 2011
Stöðumælir
Það er sama hvar í 101 ég reyni að leggja bíl þar er alltaf stöðumælir af einhverri tegund.
Ég skil það og er ekkert að mótmæla því.
En þegar stöðumælirinn er kominn í fatahengið.
Þá er kominn tími að hugsa málið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. nóvember 2011
Hurð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. nóvember 2011
Hvert fóru þeir?
Þegar þeir félagar Reagan og Gorbachev fóru saman í frí á Íslandi eyddu þeir stundunum saman í Höfða.
Á milli frétta af fundi þeirra voru sagðar fréttir af draugunum sem bjuggu í Höfða.
Ég hef ekki heyrt af þessum draugum í langan tíma.
Eru þeir fluttir?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. nóvember 2011
Fjaran
Um allan heim er fólk sem hefur aldrei séð staðið í fjöru og séð hafið.
Ég er sem betur fer ekki í þeim hóp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. nóvember 2011
Þvert
Ég hef aldrei verið mikill aðdáandi þess að setja bárujárn þvert á veggi.
Upp og niður á betur við en hægri, vinstri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 2. nóvember 2011
Ekki nema það heiti eitthvað
Sumir segja að það sé ekkert varið í landslagið ef það heitir ekkert.
Þessi foss er í Keflavík. Einni af fjölmörgum allt í kringum landið.
Ég hef spurt marga að því hvað hann heiti en enginn virðist vita það.
Mér þykir samt varið í hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)