RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Á landleið

Um helgina skrapp ég til Akureyrar.

Á pollinum sá ég engin skip á landleið.

En sjórinn var á landleið með logninu sem var á hraðferð yfir.

IMG_3046

Ryð

Ryð er ekki endalok.

Þessi plógur á aldrei eftir að plægja aftur.

Samt stendur hann fyllilega fyrir sínu.

IMG_1737

Á hvaða leið

Ég velti oft fyrir mér hvort þetta skilti sé að segja mér eitthvað annað en að vísa á staði.

thingmannaleid

Perlan

Sum sjónarhorn eru algengari en önnur.

Þó allar hliðar Perlunnar séu líkar hinum þá eru allar með sín sérkenni.

Ég hef ekki oft séð fólk við þessa hlið. 

Og aldrei séð nokkurn mann ganga inn um þessar dyr.

IMG_9569

Það er langt í nýja styttu.

Þriðjungur atkvæðisbærra landsmanna kaus í kosningu sem tveir þriðju landsmanna kaus að kjósa ekki í og Hæstiréttur dæmdi ómerka.

Framkvæmd kostninganna var með þeim hætti að vanþróuðustu lýðræðisríki hefðu verið stolt af.

Þeir sem bera ábyrgð kenna þeim  kenna öllum öðrum um.

Ég er nokkuð viss um að með þessu áframhaldi verður ekki reist stytta af þeim sem færir okkur nýja stjórnarskrá í bráð.

IMG_1765

Árstíðavilla

Nú í janúar er engin snjór en komið fínasta vorveður.

Kannski ég fari í sveitina að skoða lömbin í næstu viku.

Þá ætti að vera komið sumar.

IMG 4107

Varðan varðar vegin

Fyrir daga GPS, Loran, og skilta voru það vörðurnar sem vörðuðu leiðina.

Þessi varða varðar veg fyrir vestan.

varda

X

Eftir nokkra daga hefjast vetrar X-leikarnir.

X-leikarnir hafa verið eitt best varðveitta leyndarmálið í íslenskum fjölmiðlum í fjölda ára.

Í fyrra stóð Halldór Helgason frá Akureyri á verðlaunapallinum með gull um hálsinn. 

Hann keppir aftur í ár. 

Vonandi fáum við að fylgjast með honum í íslensku sjónvarpi.

Ég var á staðnum 2008 og langar aftur.


Á sjó

Áðan fór ég á aðalfund hjá Sjóstangaveiðifélaginu.

Nú langar mig á sjó að veiða.


Velkominn

Kötturinn bauð leikfangamúsina velkomna með opnum örmum.

IMG_2912

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband