RFV - Hausmynd

RFV

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Gleðilegt nýtt ár

Ég óska öllum sem hafa villst inn á síðuna gleðilegs og farsæls komandi árs.

IMG 9689

Draugur um áramót

Reglulega koma myndir sem haldið er fram að séu af draugum.

Því miður er nær alltaf hægt að útskýra myndirnar á einfaldan hátt.

Þar sem ég er ekki skyggn get ég ekki séð hvar draugarnir eru.  Þess vegna hef ég aldrei getað náð þeim á mynd.

Á þessari mynd er ekkert yfirnáttúrulegt.

Bara ljós sem svífur í lausu lofti og óskýr vera í bakrunni ef vel er gáð.

IMG 9559

Sveppur

Það vaxa ýmsar gerðir af sveppum á Íslandi.

Sumir ætir en aðrir eitraðir.

Ég veit ekki hvort þessi sé eitraður en ég veit að hann er ekki ætur.

IMG_1370

Vegur

Það er alveg sama hversu holóttur vegurinn er.

Með réttu hugarfari og öðru sjónarhorni sést ekkert nema bein, greið leið.

IMG_4990

Stór spurning?

Sumt skil ég ekki.

Þar á meðal hvaða listaverk þetta er, hvað það á að merkja og hvað það er að gera þarna?

IMG_1261_1

Tré

Ég hef séð mörg misvel skreytt tré.

Af öllum þeim trjám sem hafa verið umvafin ljósum er þetta það langflottasta sem ég hef séð.

tré

Gleðileg Jól

Ég óska öllum gleðilegra jóla.

nordurljos3

Sólfar og súla

Um alla borg eru styttur og minnismerki.

Sum minnismerkin eru þannig að ég man venjulega ekki eftir þeim og það eru líka til styttur sem mætti stytta sýningartímann á.

Hvorugt á við um Sólfarið og Friðarsúluna.

IMG_2976

Tré

Á fjölförnum gatnamótum er tré sem ég hafði aldrei séð fyrr en jólaljósin voru sett á það.

Á öðrum árstímum er tréð ósýnilegt.

IMG_4243

Veiði

Það eru margir góðir veiðistaðir og margir eiga sinn eftirlætis veiðistað.

Suma veiðistaði þarf að borga stórfé fyrir að fá að komast á og á aðra þarf að sigla með bát langa leið.

Aðrir staðir eru fríir, inni í borginni og þarf bara að ganga nokkur skref.

Og þar er fiskur tilbúinn að bíta á.

IMG_3406

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband