Mánudagur, 13. apríl 2009
Bárujárn
Sumt virkar vel á hús en ekki báta.
Ég er ekki viss hver tilgangurinn með því að klæða bát með bárujárni er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 11. apríl 2009
Risasveppur
Ég hef aldrei haft mikið vit á sveppum.
Ég veit að þeir eru ræktaðir á Flúðum og að þeir vaxa villtir á umferðareyjum.
Ég veit meir að segja að úti í heimi eru til sveppir sem vaxa ofaní jörðinni og á síðustu öld borguðu menn 10.000.000 lírur fyrir kílóið á Ítalíu.
En hvaða sveppur þetta eru og hvenær hann byrjaði að vaxa á Íslandi veit ég ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. apríl 2009
Bak við hólinn
Um alla borg spruttu upp kranar af öllum stærðum og gerðum.
Þetta er einn af þeim varanlegu við höfnina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. apríl 2009
Hallgrímskirkjuturn
Ég var næstum því búin að gleyma því að Hallgrímskirkjuturn var einu sinni án stillansa.
Ég er ekki frá því að það fari turninum betur að vera án þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. apríl 2009
Læðst í grasi
Hvort það var mús, smáfugl eða bandhnykill man ég ekki.
Hitt man ég að kötturinn læddist og lét sem minnst á sér bera þar til hann stökk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7. apríl 2009
Sólsetur
Það er fastur liður á hverjum degi að sólin sest.
Nú líður alltaf lengri og lengri tími þangað til að sólin sest á kvöldin.
Í kvöld sest hún klukkan 20:34
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. apríl 2009
Íshús / Glaumbær / Listasafn
Gamla íshúsið við Tjörnina er eitt af þessum húsum sem var byggt fyrir eitthvað allt annað en það hefur verið nýtt fyrir.
Upphaflega var það byggt árið 1916 fyrir Herðubreið sem Íshús. Ísinn var sóttur í Tjörnina á veturna og settur í geymslu. Síðan var tjörnin seld í burtu í smáskömtum.
árið 1961 var húsið orðið að Glaumbæ. Aðal skemmtistað borgarinnar. Gekk það allt mjög vel þangaðtil Glaumbær brann og fólkið fann sér annan samastað.
Í dag er Listasafn Íslands í húsinu.
Það er ekki laust við að ég velti fyrir mér hvað er rökréttast að komi næst í húsið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4. apríl 2009
Naut
Ég heimsótti nautabú fyrir stuttu.
Áður en ég fór inn passaði ég mig á því að vera ekki í neinu rauðu og þegar ég kom inn passaði ég mig á því að gera ekkert til að æsa nautin upp að óþörfu.
Þegar ég kom inn var nautunum alveg sama um mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 3. apríl 2009
Stökk
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunnar að það er hvorki stökkið né fallið sem slasar fólk.
Það er í lendingunni sem vandræðin byrja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 2. apríl 2009
Beðið eftir að eitthvað gerist.
Fyrir rúmu ári fór ég Gullhringinn með hóp af ungum útlendingum.
Þegar þau voru búin að sjá Þingvelli og Gullfoss var stefnan sett á Geysi.
Ég sagði þeim að Geysir gysi ekki svo oft lengur. Það gerðist í raun örsjaldan.
Til að hressa þau sem áttu sér þann draum æðstan að sjá alvöru goshver sagði ég þeim að Strokkur gysi á hverjum degi klukkan þrjú.
Augnabliki síðar heyrðist neyðaróp aftan úr rútunni. "Klukkan er hálf fjögur!"
Þeim leið strax mun betur þegar þau heyrðu að hann gysi reglulega allan daginn og á nóttunni líka.
Þegar rútan stoppaði hljóp allur hópurinn að Strokki og beið eftir að gosið myndi byrja.
Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þeim sem hafa aldrei séð gos áður stara á hverinn og þora ekki að blikka augunum af ótta við að missa af einu augnabliki. Svo kemur sælusvipurinn þegar gosið er byrjað. Strax og gosinu lýkur bíður fólkið aftur spennt eftir næsta gosi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)