Þriðjudagur, 6. apríl 2010
Varlega
Sum skilti eru augljós. Sum eru meir að segja svo augljós að það er erfitt að átta sig á því af hverju þau voru sett upp.
Við þennan útgang sá einhver ástæðu að benda fólki á að fara varlega.
Ég fór ósjálfrátt að velta fyrir mér hvort einhver annar útgangur væri úr þessu porti fyrir þá sem vilja ekki vara varlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 5. apríl 2010
Fotspor
Nú er búið að friða fyrstu fótsporin á tunglinu.
Allir sem þangað fara í framtíðinni verða að passa sig á að stíga ekki á þau eða skemma á nokkurn hátt.
Á jörðinni fann ég þessi fótspor.
Eftir kött, varðveitt í steypu.
Mér þykir þau merkilegri en sporin á Tunglinu.
Þessi fótspor get ég séð án þess að fara langt.
En ég efast stórlega um að ég eigi erindi á tunglið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 3. apríl 2010
Gos
Nýlega fór ég í ökuferð í Fljótshlíðina.
Á venjulegu fimmtudagskvöldi er það fínn staður til að vera einn með sjálfum sér.
Núna var vegurinn fullur af bílum á leið í báðar áttir.
Allir voru þar af sömu ástæðu og ég.
Skoða gos.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. apríl 2010
Fögur er hlíðin
Eftir að hafa skoðað gosið stoppaði ég eitt augnablik við Hlíðarendakot.
Þar sem fyrr var oft kátt og krakkar léku saman.
Þegar ég horfði á hlíðina, stjörnurnar og norðurljósin skildi ég vel af hverju Gunnar ákvað að vera kyrr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. apríl 2010
Selur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 31. mars 2010
Lóan er komin
Á hverju ári birta allir fjölmiðlar fréttir um að lóan sé komin.´
Fyrir mér er það ekki mikilvægasta fuglakoma ársins.
Ég bíð alltaf eftir lundanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 30. mars 2010
Horft til himins
Í gær horfði ég til himins og sá grænt.
Norðurljósin komu í stutta heimsókn en loguðu ekki skært.
Þessi mynd var ekki tekin í gær.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. mars 2010
Lækur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. mars 2010
Mastrið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 26. mars 2010
Raf-magnað
Merkilegt hvað hversdagslegustu og óspennandi hlutir öðlast nýtt líf þegar réttum ljósum er stungið í samband.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)