RFV - Hausmynd

RFV

Varðan

Vörðurnar vörðuðu leiðina fyrir ferðalanga fyrri daga.

Í dag hafa vegstikur og ljósastaurar tekið við.

Þó vörðurnar lýsi ekki í myrkri þá eru þær flottari.

varda

Í björtu

Ég hef gaman af flugeldum.

Á meðan aðrir eru að skjóta upp skýt ég á flugeldana með myndavélinni.

Flestir skjóta upp flugeldum í myrkri.

Eina sýningu hef ég séð á björtum degi.

Sýningin mynnti mig á gamla sjónvarpið.

Hljóðið var í lagi en það vantaði eitthvað uppá myndina.

flugeldar

Kofinn

Litli gamli kofinn virðist vera búin að þjóna sínum tilgangi.

Samt setur hann sinn svip á umhverfið.

kofi

Heiti lækurinn

Ég átti leið um Nauthólsvíkina nýlega. 

Þar sá ég skurð.  Veggirnir hlaðnir og með reglulegu millibili var stífla.

Skurðurinn var kunnuglegur. 

Ég og fleiri muna örugglega eftir honum fullum af vatni, heitu vatni.

Heitilækurinn í Nauthólsvík var lengi vel heitipottur þeirra sem ekki höfðu heitan pott heima hjá sér.  Gestir Heitalækjarins voru af öllum gerðum og öllum aldri.  Lækurinn var eins og heitu pottar sundlauganna nema hann var allt öðruvísi.

Einn dag var skrúfað fyrir vatnið og Heitilækurinn breyttist í Kaldaskurðinn. 

Hvernig væri að skrúfa frá og gefa okkur lækinn aftur.

laekur

Litla flugan

Ég var á ferðalagi og sá þessa flugu.

Ég ákvað að bjóða henni ekki með mér heim en hún stillti sér upp fyrir myndatöku.

fluga


Fossinn

Sumar náttúruperlur eru vel faldar í alfara leið.

Þessi foss er í felum við gatnamót þar sem þúsundir aka framhjá á hverjum degi.

En ég held að það séu bara tugir sem sjá fossinn á hverjum degi.

foss

Gamalt og nýtt

Borgartúnið er gata andstæðnana.

Gömul hús og ný.

Samt er einhvervegin þannig að húsin líta betur út eftir því sem þau eru eldri.

borgartun

Bílastæði

Borgartúnið er fullt af bílastæðum.

Stundum velti ég því fyrir mér hvort skipti meira máli bílastæðin eða húsin.

Bílastæðin taka a.m.k. meira pláss.

bilastaedi

Steypa

Á turni sem er gerður að mestu úr gleri er einn veggur steyptur.

Mér þykir sá hluti turnsins vera sá flottasti.

Svo er það spurning hvort það segi meira um steypta veggin eða restina af turninum.

veggur

Húsið

Á svæðinu í kringum Borgartúnið hafa verið byggð og endurbyggð mörg hús.

Flest þeirra húsa eiga það sameiginlegt að vera stór, hafa ofvaxin bílastæði í kringum sig og hafa ekki útlitið með sér.

Eitt hús hefur sloppið.

Í jarðrinum á svæðinu er gamla Ó Johnson & Kaaber húsið.

Hús sem fjölmargir aka framhjá, sumir jafnvel daglega en sjá ekki.

Þegar ég fer framhjá sé ég eitt fallegasta hús borgarinnar. 

Ef vel er hlustað þá heyrist að húsið öskrar eftir því að fá hlutverk.

husid

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband