RFV - Hausmynd

RFV

Líf

Það er hægt að höggva það niður, saga í búta og flytja langar leiðir.

En það virðist ekki vera hægt að drepa það.

tré

Köttur

Kettinum virtist ekki leiðast að enginn virtist hafa nennt að slá grasið.

wild

Hóllinn

Við Elliðavatnið er hóll.

Með grænu grasi og gulum blómum.

Litli stígurinn mætti frekar fara kringum hólinn.

soleyar

Hver má aka?

Sumir vegir eru ekki opnir öllum.

En ég vissi ekki að það skipti máli hversu langt bíllinn kemst.

Á þessum stað skiptir það greinilega máli.

Líklegast þarf að hafa vottorð sem sýnir hversu langt bíllinn kemst.

Svo er að skilgreina hversu langt er langt.

langferdabill

Gosbrunnur

Í Tjörninni er gosbrunnur.

Nýlegur gosbrunnur sem tók við af öðrum eldri.

Gamli gosbrunnurinn var hár og kraftmikill.

Sá nýi er það ekki.

gosbrunnur

Hef ég um eitthvað annað að velja?

Þegar ég sá þetta skilti fór ég að velta fyrir mér hvaða annan möguleika ég hafði.

Svo fór ég að velta fyrir mér tilgangi skiltisins.

stop

Fullt af fíflum

Þegar ég leit út um gluggann hjá mér um helgina sá ég fullt af fíflum,.

Ég hef aldrei haft neitt á móti fíflum.

Ég er fyrir löngu farinn að gera mér grein fyrir því að garðurinn hjá mér fyllist af fíflum á sumrin sama hvað ég geri.

blom
Einn af fjölmörgum fíflum sem hefur tekið sér bólfestu í garðinum.


Brúin

Yfir Elliðaár eru fjölmargar brýr.

Sumar eru miklar umferðaræðar og fjöldi fólks fer yfir sumar brýrnar á hverjum degi.

Svo eru brýrnar sem fáir fara yfir.  Standa jafnvel ónotaðar heilu dagana.

Við veiðihúsið er gömul brú.

Brú sem fáir nota og margir gleyma.

brúin

Fuglar

Á sumrin fyllist fuglabjargið af fuglum.

Það eru ekki bara sjófuglarnir sem raða sér í bjargið og á brúnina.

Fljótlega á eftir þeim koma furðufuglarnir með stóru myndavélarnar.

Þeir þurfa stórar linsur til að ná litlum fuglum.


Sumarið er komið

Nú þegar sumarið er komið þá taka ný lögmál við.

Það verður allt léttara.

Meir að segja þyngdarlögmálið hættir að virka.

IMG 6095

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband