RFV - Hausmynd

RFV

Bragginn

Um miðja síðustu öld voru braggar um allt land.

Heilu hverfin yfirfull af bröggum.

Svo var bröggunum rutt til hliðar í skiptum fyrir mannsæmandi húsnæði.

Það eru nokkrir braggar á við og dreif um landið en ég held að það búi ekki nokkur maður í þeim.

En þetta er fínustu skemmur.

IMG 4104

Kálfurinn

Kálfurinn lét fara vel um sig í heyinu.

Kúnni virtist vera sama þótt hann lægi í matnum.

IMG 3985

Endurunnið

Þótt eitthvað hafi verið búið til, til að vera eitthvað ákveðið og reynst vel í því hlutverki.

Er ekkert sem segir að það sé ekki hægt að finna ný not seinna meri.

Þessi sumarbústaður hóf sína daga sem rúta á síðustu öld en settist svo að í Skagafirði.

ruta

Brú

Brýr þurfa ekki alltaf að vera sléttar, beinar eða nýjar.

Oft er nóg að hún nái milli bakka.

brú

Gamli bíllinn

Það er eitthvað við gamla bíla.

Gamlir bílar eru flottari en nýir.

Svo endast þeir líka mun betur.

Ég veit ekki um neinn nýjan bíl sem hefur enst jafn lengi og þessi.

IMG 1381

Gamli vagninn.

Þegar ég tók strætó í fyrstu skipti skipti miklu máli hvaða vagn var tekinn.

Það átti alls ekki að taka gamla vagninn.

Gamla Volvo sem var jafngamall og hægriumferðin.

Nýlega sá ég gamla Volvo.

Hann leit nákvæmlega eins út í dag og hann gerði á síðustu öld.

Ég hugsa að ég myndi hoppa upp í hann ef hann stoppaði á stoppistöð nálægt mér.

Jafnvel þótt ég væri að fara eitthvað annað.

IMG 1370

Götuspilarinn

Á ferðalögum sé ég oft götuspilara.

Færir tónlistarmenn sem leika fyrir alla sem eiga leið hjá. 


Edinborg


Kaupmannahöfn

null
Maastricht


Pétursborg


Bláalónsþrautin

Í júní 2008 rakst ég á auglýsingu um hjólreiðakeppni.  Það var hægt að velja um 60 eða 40 km. 

Ég ákvað að velja auðveldu leiðina og hjóla bara 40 km. 

Án þess að hafa hugmynd um hvað ég var að fara útí kom ég mér fyrir á ráslínunni þegar keppnin átti að byrja.  Fljótlega var mér bent á að ég snéri vitlaust.

Löngu síðar kom ég í mark á bílastæði Bláa lónsins.  Eftir að hafa barist við loftleysi í dekkjum, krampa og þreytu.

Ári síðar mætti ég aftur og fór sömu leið á betri tíma.

Nú er komið að því að keppa í þriðja sinn og fyrri tímar verða bættir.

ragnar
Nýkominn í mark árið 2008.
Mun þreyttari en myndin gefur til kynna.


Velkominn

Ég þekki merki þess að ég sé velkominn.

Öryggismyndavélar í gluggum eru ekki eitt þeirra merkja.

myndavelar

Köttur

Heimiliskettir eru náskildir ljónum.

Ég er samt ekki viss hvort ég myndi vilja hafa ljón jafn nálægt mér og heimiliskött.

MAX II

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband