RFV - Hausmynd

RFV

Landbrot

Frá upphafi Íslands, löngu áður en nokkur maður fann það hefur verið keppni milli landsins og sjávar.

Sjórinn brýtur af því og landið færist til vesturs og austurs.

Í dag er þetta nokkuð jafnt.  2cm á ári hjá báðum.

IMG_7610
Hér má sjá sjóinn í sinni baráttu við landið.


Fuglar í fjöru

í sumar fann ég þessa fugla í fjöru.

Fyrirtaks myndefni en þeir höfðu engan áhuga hvorki á að standa kyrrir eða fljúga hægar.

IMG_7950

Foss

Á Íslandi eru nokkrar Keflavíkur.

Ég skrapp í vestustu Keflavíkina í sumar.

Einn stærsti kosturinn við þá Keflavík er að hún er utan alfaraleiðar.

Fínn staður fyrir þá sem vilja vera einir með sjálfum sér.

Samt hugsa ég til allra þeirra sem óku framhjá afleggjaranum til Keflavíkur.

Þeir hafa aldrei séð þennan foss.

IMG_8435

Neyðarskýlið

Það lætur ekki mikið yfir sér neyðarskýlið í Keflavík.

Sumir gætu jafnvel haldið því fram að þetta væri ljótur kofi.

En fyrir þá sem gætu þurft að nýta sér húsið er þetta örugglega hin glæsilegasta höll.

IMG_8293

Bifröst

Samkvæmt Ásatrú er regnboginn brú frá Miðgarði til Ásgarðs og heitir Bifröst.

Ég hef aldrei gengið eftir Bifröst.

Ég hef heldur aldrei átt erindi í Ásgarð.

IMG_8669

Skórnir

Í gömlu bátahúsi sem þakið fauk af fyrir mörgum árum en veggirnir standa ennþá af gömlum vana eru þessir gúmmískór.

Ég get ekki annað en velt fyrir mér hvort eigandi skónna hafi gengið berfættur heim.

IMG_5690

Hornið hans Helga

Á horni Langholtsvegar og Holtavegs er bekkur og hella.

Það eitt og sér er ekki merkilegt.

Hellan og bekkurinn eru til að mynnast Helga Hóseasarsonar, mannsins sem mætti hvenær sem hann gat með sín skilti og mótmælti ranglæti.

Hornið er ekki það sama án hans.

IMG_9312

 

IMG_9323

Rosabaugur

Þegar skyggir horfi ég oft upp í himininn.

Aðallega að í leit að norðurljósum.

Tunglið þvælist oftast fyrir mér í þeirri leit.  Lýsir norðurljósin í burtu.

Nýlega fór ég út og horfði lengi á tunglið.

Fullt tungl og rosabaugur í kring.

IMG_9260

Vörður

Um allt land hlóðu menn vörður til að eiga auðveldar með að rata milli staða.

Vörðunum var raðað upp þannig að frá einni vörðu væri alltaf hægt að sjá þá næstu.

Þokan hjá milli þessara varða hefur líklegast verið mjög þétt.

IMG_5457

Í vegkanti

Sum blóm þurfa mold og alúð til að vaxa.

Öðrum líður vel í vegkantinum.

IMG_5452

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband