RFV - Hausmynd

RFV

Fuglahús

Víðsvegar hefur fólk sett upp fuglahús.

Heimili fyrir fuglana að verpa í.

Stundum koma fuglar í húsin og stundum ekki.

Það var enginn kominn í þetta hús.

Af hverju, veit ég ekki.

IMG_5390

Stígur endar

Ég fagna hverjum metra sem bætist við hjólreiðastíga borgarinnar.

Nýlega bættist nýr við á Hverfisgötuna.

Sá stígur er bæði vænn og grænn.

Þó þykir mér stígurinn enda alltof snögglega.

IMG_9301

Grænar bólur

Ég tók nýlega eftir því að Hverfisgatan hefur skipt um lit.

Á nokkrum stöðum er jafnvel hægt að segja að gatan sé komin með grænar bólur.

IMG_9291

Ísbjörn í Húdsýragarðinn

Nýlega kom maður sem sagði að hann vildi fá ísbjörn í Húsdýragarðinn.

Ég sé enga þörf á því.

Hver þarf ísbjörn sem hefur sel.

IMG 6079

Biðukollan

Ég hef ekkert á móti biðukollum þar sem þær standa með sinn gráa topp upp úr grasinu.

Biðukollan væri frábært blóm ef hún væri ekki að dreifa fíflum allt í kringum sig.

IMG_3962

Bak við rimla

Á sumrin virkar Skarfabakki eins og segull á stór skemmtiferðaskip.

Þau leggjast að bryggju og bíða á meðan farþegarnir ferðast um borgina og nágreni.

Ég hef oft velt fyrir mér að fá far með einu skipinu.

Rimlaverkið í á bakkanum virkar samt ekki á mig eins og ég sé boðinn velkominn um borð.

IMG_4893

Milli tveggja húsa

Milli tveggja húsa á Hverfisgötu var reistur veggur.

Ólíkur húsunum til hægri og vinstri.

Við fljóta sýn er ekki hægt að sjá hvort veggurinn sé hluti steypta hússins eða þess bárujárnsklædda.

Ég kýs að halda því fram að veggurinn fylgi hvorugu húsinu. 

Ég ætla að halda því fram að þetta sé framhlið á kastala sem er á bak við húsin.

IMG_4942

Foss

Einn af mínum eftirlætisfossum er í Reykjavík.

Í Elliðaánum rétt fyrir neðan stífluna er þessi foss.

Ekki hægt að sjá hann úr bíl en allir sem ganga upp dalinn Breiðholtsmegin komast ekki sjá hann.

Fyllilega göngunnar virði.

IMG_5042

Á hvolfi

Almenna reglan er sú að höfuð snúi upp og fætur niður.

Það er líka viðtekin venja að halda sig á jörðinni.

Svo er þyngdarlögmálið eitthvað sem fólk ætti að fara eftir.

Þótt þetta hljómi rökrétt eru alltaf einhverjir sem þurfa að vera öðruvísi og snúa öllu á hvolf.

Sjálfum sér a.m.k.

IMG 6072

Lundi

Það er nauðsynlegur hluti af hverju sumri að sjá lunda. 

Þennan sá ég 2008.

IMG 2405

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband