RFV - Hausmynd

RFV

Faxi

Fór að skoða fossinn Faxa í gær.

Foss sem er vel falinn í alfaraleið.

IMG_2169

Gamla brúin

Sumar brýr eru hreinustu listaverk.

Aðrar eru gerðar til að ná á milli bakka.

IMG 4094

Í klakaböndum

Á veturna breytist hluti af sumum ám í ís.

IMG_1968

Turninn

Í París er vart til sá staður þar sem þú getur ekki séð Eifel turninn.

Ég hef séð mjög fáar myndir frá París þar sem turninn blasir ekki við frá einhverju sjónarhorni.

Þetta sjónarhorn hef ég sjaldan séð.


Samspil ljósa

Nýlega sá ég hvernig borgarljósin, norðurljósin og Friðarsúlan máluðu himininn saman.

Nokkuð vel gert verð ég að segja.

IMG_2062

Álafoss

Ég hef séð Álafossverksmiðjuna.  Bæði þá gömlu og nýju.

Ég hef oft farið í gegnum Álafoss kvosina.

Um helgina sá ég Álafoss í fyrsta skipti.

IMG_2031

Norðurljós

Í gær var kveikt á norðurljósum.

Tvímælalaust besta plasma sjónvarp sem völ er á.

IMG_2051

Einka almenningsgarður

Það eru til almenningsgarðar og það eru til almenningsgarðar.

Eitt besta geymda leyndarmálið í Reykjavík er garður sem er bæði almenningsgarður og einkagarður.

Falinn fyrir allra augum á bak við Alþingishúsið er Alþingisgarðurinn. 

Almenningsgarður sem er opin öllum en er líka einkakirkjugarður Tryggva.

IMG_1868

Borgarjós

Þegar sólin sest hætta húsin við ströndina að vera úr gleri, steypu og stáli.

Aðal byggingarefnið verður ljós.

IMG_1939

Norðurljós í felum

Þótt norðurljósin hafi falið sig á bak við skýin var hægt að sjá Esjuna, Friðarsúluna, ströndina og ský allt á sama stað.

Og ef vel var að gáð sáust norðurljósin milli skýanna.

IMG_1942

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband