Miðvikudagur, 10. nóvember 2010
Stöðumælirinn
Í fatahengi fann ég þennan stöðumæli.
Ég þorði ekki öðru en að borga í hann.
Ekki vildi ég fá sekt á jakkann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. nóvember 2010
45 dagar
Í dag eru bara 45 dagar til jóla.
Af því tilefni set ég inn mynd af einu af mínum uppáhalds jólatrjám.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. nóvember 2010
Vetur
Í fjarlægum löndum kemur veturinn einu sinni á ári og er í nokkra mánuði.
Á Íslandi kemur veturinn nokkrum sinnum á ári.
Snjórinn kemur og bráðnar bara til að koma aftur nokkrum dögum síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. nóvember 2010
Rauða kúlan og súla Lennons
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. nóvember 2010
Bleikt grjót
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. nóvember 2010
Fyrsti snjórinn
Í gær kom fyrsti snjór vetrarins.
Ég vona að það komi meiri snjór.
Svo mikill snjór að skíðasvæðin opni sem fyrst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. nóvember 2010
Símklefi?
Við fyrstu sýn mætti halda að það væri símklefi á litlu flotbryggjunni.
Við nánari athugun sá ég að þetta var að sjálfsögðu aðstaða fyrir Superman að skipta um föt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. nóvember 2010
Gangbrautin
Ég veit ekki af hverju gangbrautir þurfa alltaf að vera hvítar.
Ég fann eina græna gangbraut.
Það sem ég ekki skil er hvers vegna gangbrautin er við enda á fáfarinni götu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. nóvember 2010
Slippurinn
Slippurinn í Reykjavík hefur verið hluti af borginni svo lengi sem ég man eftir mér.
Fyrir einhverjum árum fékk einhver þá stórundarlegu hugmynd að senda Slippinn í burtu og byggja veg og blokk í staðin.
Sem betur fer varð ekkert úr því.
Ég veit um margar borgir sem hafa vegi og blokkir í miðbænum.
En ég man ekki eftir neinum öðrum stað sem hefur slipp í miðbænum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 30. október 2010
Laufblöð falla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)