RFV - Hausmynd

RFV

Breytingar

Þessa mynd tók ég árið 2006.

Sumt er óbreytt en annað ekki.

Höfnin er þarna ennþá.

Húsið sem ég stóð uppá og tók myndina er það ekki.


Jólaljós

Fyrir jólin keppast margir við að skreyta og lýsa meir en allir aðrir.

Fyrir mér er það ekki magnið, fjöldi ljósapera eða styrkur þeirra sem skiptir máli.

Oft er það einfaldleikinn sem er bestur.

Á seðlabankanum hefur svo lengi sem ég man eftir mér verið ein rauð sería utaná húsinu.

Ég veit alltaf að jólin nálgast þegar ég sé rauðu röndina.

IMG 9203

Líf á öðrum hnöttum.

Nú ætla vísindamennirnir hjá NASA að halda fund þar sem þeir ætla að sýna okkur sönnun um líf á öðrum hnöttum.

Ég efast ekki um að þeir sýni eitthvað líf sem sést í öflugri smásjá.

Þessi mynd er af andliti sem ég sá uppi í geimnum.

Hugsanlega geimvera.


Frost

Frostið getur búið til ísstyttur án okkar hjálpar.

Hér bjuggu vatnið og frostið til nýtt tré utanum litlu hrísluna.

IMG_3558

Hvenær kemur snjórinn?

Undanfarin ár hefur veturinn komið en ekki gefið okkur snjó að ráði.

Vonandi fáum við snjó í vetur.

Þá er bjartara yfir öllu.

snjokall

Til Tunglsins

Nýlega íhugaði ég að fara til Tunglsins.

Ég hætti við þar sem ég sá að Tunglið var fullt.

IMG_2148

Innanhúshönnun

Rétt litasamsetning er mjög mikilvæg í innanhúshönnun.

Myndin hér að neðan hefur ekkert með fullyrðinguna hér að ofan að gera.

DSCF0134


Tréð

Núna er árstíminn sem fá tré virðast geta verið án ljósa.

Ég tók mynd af þessu tré fyrir nokkrum árum.

Ég hef ekki ennþá fundið flottara skreitt tré.

DSCF0013a

Hafið

Þetta er ekki allt hafið.

Þetta er bara yfirborðið.

IMG_2537

Trillur

Þótt smábátar hafa tekið við af trillum að mestu má ennþá finna einstaka trillu við bryggju.

Ef vel er gáð sést glitta í eina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband