Þriðjudagur, 6. desember 2011
Hlið
Ég fer oft framhjá rammgerðri girðingu.
Girðingin er há og á toppnum er gaddavír svo engin kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.
Ég komst inn vegna þess að hliðið var opið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. desember 2011
Bekkir
Bekkir eru fínir til að setjast niður og skoða útsýnið.
Útsýnið af þessum bekkjum er flott.
Útsýnið af þessum bekkjum er fyrir aftan ljósmyndarann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 3. desember 2011
Öndin
Á síðustu öld fengu nokkrir menntaskóladrengir við Sund þá hugmynd að vera með matreiðslukennslu á skemmtikvöldi í skólanum.
Þær byrjuðu á að segja frá mikilvægi fersks hráefnis og að í kvöld ætluðu þeir að matreiða önd.
Opnuðu þeir þá kassa og uppúr kassanum hoppaði skefldur fugl sem vildi sleppa í burtu og menntaskóladrengirnir hlupu með hnífa á lofti.
Samnemendur þeirra hvöttu þá til að hlífa fuglinum við matreiðslunni og gefa honum frelsi.
Eftir að hafa hlaupið á eftir fuglinum og náð honum létu þeir vita að enginn önd yrði matreidd þetta kvöld og lofuðu að frelsa fuglinn.
Daginn eftir fóru þeir svo með fuglinn til bóndans sem var í Laugardalnum. Þeir höfðu stolið einum af alifuglum bóndans og voru komnir til að skila honum.
Þeir bönkuðu að dyrum og bóndinn kom.
Þeir kynntu sig og sögðu að þeir hefðu fundið þessa önd á og töldu að hún hefði villst að heiman. Það hljómaði betur en að segja eins og var að þeir hefðu stolið henni deginum áður.
Bóndinn horfði á menntaskólastrákana og fuglinn og sagði svo "Þetta er ekki önd. Þetta er gæs."
Gæsin á myndinni tengist sögunni ekki að öðru leiti en að hún er gæs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. desember 2011
Gaddavír
Á yngri árum var ég oft í Keflavík.
Bak við húsið var girðing.
Ég var Íslandsmegin við girðinguna en hinumegin við girðinguna var Ameríka.
Efst á girðingunni var gaddavír svo enginn gat klifrað yfir.
Eitt sinn langaði mig að tína krækiber og vitandi að allt væri stærra í Ameríku vissi ég að krækiberin væru stærri og betri hinumegin við girðinguna.
Þó girðingin væri með rammgerðan gaddavír að ofan var hún lík svissneskum osti að neðan.
Götótt út um allt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. desember 2011
Grindverk
Sú var tíð að grindverkin voru úr steypu og listaverk útaf fyrir sig.
Þetta er frá þeim tíma á síðustu öld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 30. nóvember 2011
Bros
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. nóvember 2011
Jólasveinahúfa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. nóvember 2011
Hvar er ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 26. nóvember 2011
Hin hliðin
Þegar ég ferðast horfi ég oft í hina áttina.
Á meðan flestir horfðu á brúnna skoðaði ég bústað þeirra sem bjuggu undir brúnni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 25. nóvember 2011
Stétt
Í Kaupmannahöfn var byggður sívalur turn og stúdentagarður við hliðina.
Svo uppgötvaðist að húsin voru of nærri hvort öðru.
Það þótti vera of mikið vesen að færa turninn nokkra metra.
Betra var að færa gangstéttina inn í stúdentagarðinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)