Föstudagur, 22. september 2006
Gamla herstöðin
Uppi á miðnesheiði er gömul herstöð.
Fyrst kom herinn þegar heimstiriöldin síðari var í fullum gangi.
Svo kom kaldastríðið.
Nú er það allt búið.
Kaninn farinn heim með þyrlurnar, officera klúbbinn, Wendys og TacoBell.
Í kringum herstöðina var öflug girðing til að kommúnistum, kindum og öðrum íslendingum í burtu.
Þegar ég var barn var ég sendur í pössun til frænku í Keflavík. Hún bjó við þessa varnarlínu.
Berin voru miklu betri í Ameríku. Með nokkurra metra millibili var gat á girðingunni svo hægt væri að komast í þessi stórkostlegu Amerísku krækiber sem voru mun stærri, sætari og betri Ameríkumeigin en á Íslandi.
Nú hefur girðingin svipað gildi og Berlínarmúrinn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.