Laugardagur, 24. mars 2007
Flóð í Elliðaám.
Margar af helstu borgum heims hafa á sem rennur í gegn. Ef einhverjar af þessum ám flæða yfir bakka sína fer allt á annan endan, sjónvarpsstöðvar um allan heim eru fullar af fréttum um hamfarirnar og heimsbyggðin fylgist með.
Í Reykjavík höfum við Elliðaár. Það tekur ekki nokkur maður eftir því þó þær flæði yfir sína bakka.
Í gær fór ég og skoðaði Elliðaár eins og þær líta út í vatnavöxtum.
Elliðaárnar sem renna venjulega sem renna venjulega eins og rólegur lækur eru farnar að líkjast stórfljóti.
Það er þess virði að skoða Elliðaárnar í ham.
Hér eru fleiri myndir af vatnavöxtum í Elliðaám.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.