Þriðjudagur, 23. júní 2009
Þétting byggðar
Eitt af tískuorðunum í borgarskipulagi er þétting byggðar.
Ég er nokkuð sammála því. Því þéttari sem byggðin er því styttra er í alla hluti.
Í Edinborg er byggðin mjög þétt.
Þar hafa verið byggðir margir turnar og þeim raðað þétt saman í raðhús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 22. júní 2009
Hvort kom á undan
Það eru margir sem velta því fyrir sér hvort hafi komið á undan eggið eða hænan.
Ég velti slíkum hlutum ekki fyrir mér.
Þegar ég á leið um Sandgerði velta fyrir mér hvort kom á undan vitinn eða skemman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 20. júní 2009
Braggi í Kópavogi
Þeir eru ekki margir braggarnir eftir á landinu.
Þennan bragga fann ég miðju nýju íbúðahverfi í Kópavoginum.
Ég er ekki viss hvort ég geti fundið hann aftur.
Ég er eins og flestir íslendingar.
Ég rata ekki í Kópavogi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 19. júní 2009
Brabra brauð
Ég ólst upp við að fara reglulega niður á tjörn að gefa brabra brauð.
Lengi hélt ég að brauð væri þeirra aðalfæða.
Þessa önd fann ég viðsfjarri öllum brauðmolum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 18. júní 2009
Hvað á liturinn að heita
Til að leggja auka áherslu að eitthvað sé mjög rautt er talað um eldrautt.
Ég hef alltaf átt mjög erfitt með að skilja það.
Þessi eldur er a.m.k. ekki eldrauður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 17. júní 2009
Dýr að leik
Ég held að það skipti engu máli hversu stórir eða litlir kettirnir eru þá hafa þeir alltaf gaman að því að leika sér.
Þetta þekkja allir sem hafa haft kött á heimilinu hjá sér.
Ég sá þennan stóra kött uppstoppaðan við eina af sinni eftirlætis iðju.
Í eltingaleik við héra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. júní 2009
Kría
Það er hægt að segja margt um kríu.
Hún flýgur í orðsins fyllstu merkingu heimshorna á milli tvisvar á ári.
Hún er ótrúlega dugleg við að afla sér og ungum sínum fæðu.
En það sem ég og fleiri taka mest eftir er að hún er hávær og árásargjörn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 13. júní 2009
Bláalónsáskorun
Á morgunn er Bláalósnsáskorun Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Ég ætla að taka þátt og hjóla 40 km.
Í fyrra tók ég þátt í fyrsta skipti. Hafði í raun ekki hugmynd um hvaða vitleysu ég var að fara útí.
Í ár veit ég hvað ég ég er að fara að gera og stefni á að bæta tímann um a.m.k. klukkutíma.
Ég held að það sé ekki svo fráleitt markmið því ég er búin að æfa mig betur en í fyrra og er með nýjar slöngur í dekkjunum. Í fyrra fóru 40 mínútur í að laga sprungið dekk svo ég þarf ekki að bæta hjólatímann nema um 20 mínútur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. júní 2009
Ísbjörn
Í fyrrasumar fór allt á annan endann þegar fólk taldi sig sjá ísbirni um allt land.
Tveir voru veiddir en fólk taldi sig sjá fleiri. Venjulega var fólk að ruglast á snjósköflum, hestum eða kindum.
Sjálfur vill ég hafa þá í öruggri fjarlægð.
Þrátt fyrir að þeir eru mjög vingjarnlegir að sjá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)