Mánudagur, 18. júlí 2011
Umferð
Vegurinn í Kömbunum er einn skemmtilegasti vegur á Íslandi.
Þennan dag var hann það ekki.
Ekki í þessari umferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. júlí 2011
Gamla grillið
Í gömlum dægurlagatexta segir "Grillmatur er góður, gómsætt kjarna fóður".
Ég hef svo lengi sem ég man eftir mér verið æstur í grillaðan mat og alltaf haft grill á svölunum.
Undanfarin 10 ár stóð gamla grillið vaktina og var alltaf reiðubúið að gera góðan mat betri.
Grillið hafði staðið af sér sól, frost, snjókomu, regn og öskufall.
Eftir öll þessi ár var það farið að láta á sjá og ég var farinn að nota stórvirka skiptilykla til að stilla hitann.
Svo rann upp sá tími að gamla grillið var sent í burtu og nýtt grill komið í staðinn.
Þessi mynd var tekinn rétt áður en ég skipti um brennara í grillinu.
Ef vel er skoðað má sjá kótelettur í eldinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. júlí 2011
Skrifstofufárviðri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. júlí 2011
Geit á beit í gervisveit
Sá geit á beit í sveit.
Geitin var reyndar ekki á beit í alvöru sveit.
Geitin var á beit í Húsdýragarðinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. júlí 2011
Pallbíll á palli
Hugtakið pallbíll fékk alveg nýja merkingu fyrir mér nýlega.
Þá sá ég pallbíl koma með pallbíl á pallinum.
Miðað við hvað bensínverðið er orðið hátt er hugsanlega hagstæðara að láta sparneytnari vörubíl flytja pallbílinn með stóru V8 vélina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. júlí 2011
Flugskýlið sem var
Við Patreksfjörð er flugvöllur sem ég óttast að sé að breytast í þátíð.
Hingað flýgur enginn lengur með farþega og skafrenningurinn rennur yfir brautina allt árið. Stundum snjór stundum sandur.
Við flugvöllinn er flugskýli.
Áður voru veggir á skýlinu.
Seinast þegar ég sá skýlið voru veggirnir farnir.
Ætli eitthvað fleira sé farið í dag?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 11. júlí 2011
Sjór og land
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 8. júlí 2011
Uppstoppaður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. júlí 2011
Möl
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. júlí 2011
Allskornar veður
Á íslandi er allskonar veður.
Við fáum regluleg sýnishorn af næstum öllu veðri sem til er.
Sum veður fáum við þó mjög sjaldan.
Ég held að það eina sem við fáum sjaldnar en lóðrétt regn sé þrumuveður.
Ég þurfti að fara til annars lands til að ná mynd af þessu þrumuveðri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)