Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Ský
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. febrúar 2010
Hestur í húsi
Eftir að hafa verið í haga og bitið gras fram að áramótum komu hestarnir í hús eftir áramót og héldu áfram að bíta gras.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 13. febrúar 2010
Steingerfingur
Steingervingar hafa gefið margar gagnlegar upplýsingar um líf fyrir miljónum ára.
Í Grjótaþorpinu var hús sem í dag stendur ekkert eftir af, nema steingerfingur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. febrúar 2010
Grótta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010
Lundi
Þegar ég sé lundann fer ég alltaf að velta einu fyrir mér.
Hann hefur stóran búk og litla vængi.
Hvernig fer hann að því að fljúga?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Sólfar og súla
Þótt Sólfarið fljóti ekki og Friðarsúlan sé ekki alvöru súla þá myndi ég sega að það hafi heppnast mjög vel til í báðum tilfellum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. febrúar 2010
Vetur
Samkvæmt dagatali er vetur.
Veðrið minnir samt meir á vor.
Ég væri til í snjó og frost.
Alvöru vetrarveður um vetur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. febrúar 2010
Á flugi
Þegar ég fer á skíði þá vil ég halda mig sem mest á jörðinni.
Það á ekki við um alla.
Sumir nota snjóinn til að fljúga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Kajak
Það þarf ekki stóran bát, öfluga vél eða stórt segl til að fara fara á sjó.
Lítill einsmanns kajak er allt sem þarf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Horft af brúnni
Í gær stóð ég á einni göngubrúnni yfir Miklubraut og horfði á þrjár akreinar yfirfullar af bílum. Sjálfum þykir mér hundleiðinlegt að vera bíl hálfföstum í umferð og ég get ekki ímyndað mér að nokkur annar geti haft ánægu af því að sitja í bíl og hafa ekkert annað að horfa á í lengri tíma en afturendann á bílnum fyrir framan.
Ég fór að velta fyrir mér hvort það væri ekki til einhver lausn á þessum umferðarvanda. Lausn sem við myndum öll græða á.
Þessi umferðarþungi er ekki bara að kosta tíma. Hann er líka að kosta peninga. Peninga sem brenna upp í vélinni. Bíllinn eyður mun meira eldsneyti á því að vera stöðugt að stöðva og taka af stað aftur. Í stað þess að aka á jöfnum hraða.
Ekki má gleyma kostnaði samfélagsins við viðhald vega. Því meiri sem umferðin er því meiri þörf er á viðhaldi veganna. Það er kostnaður sem lendir á okkur öllum
Þessi umferðarþungi er ekkert náttúrulögmál.
Það á ekki að þurfa að eyða meiri tíma kyrrstæður í bíl á Miklubrautinni en á ferð.
Göturnar þurfa ekki að fyllast af bílum tvisvar á dag þegar fólk hópast í og úr vinnu.
Lausnirnar eru nokkrar og eiga það allar sameiginlegt að borga með sér frá fyrsta degi.
Flestir bílarnir á götunum eru gerðir fyrir fjóra farþega og einn ökumann. Samt eiga flestir bílarnir það sameiginlegt að í þeim er ökumaður en engin farþegi. Það er augljóst að því fleiri sem eru í hverjum bíl því færri bílar þurfa að vera á götunum á sama tíma.
Fólk sem býr í sama hverfi og vinnur á svipuðum slóðum getur skipst á að aka hvort öðru í vinnuna. Ef fjórir fara saman í bíl þá er eldsneytiskostnaðurinn á hvern 25% af því sem hann væri ef aðeins einn væri í bílnum og það væri þrem bílum færra á götunni.
Það eru líka til fleiri ferðamátar en einkabíllinn.
Það er líka hægt að taka Strætó. Fyrir hvern farþega þar sem ákveður að skilja bílinn eftir heima og taka strætó er einum bíl færra í umferðinni. Þar munar um hvern og einn. Svo má ekki gleyma því að á Miklubrautinni hefur Strætó sér akrein þar sem hann brunar framúr kyrrstæðum einkabílum.
Sjálfur fer ég oftast hjólandi í vinnuna. Hjólaleiðum í borginni hefur farið fjölgandi og stefnt er á að fjölga þeim mun meira á komandi árum. Það er hægt að hjóla nær alla daga ársins og í mínu tilfelli munar það um 10 mínútum á ferðatíma við bestu aðstæður á bíl og að fara á hjóli. Það er tími sem mér þykir mjög vel varið. Ég nýti tíman sem fer í ferðalög í og úr vinnu til hreyfingar.
Það er nokkuð ljóst að það er hægt að leysa umferðarvandann ef við viljum.
Ég legg mitt af mörkum. Hvað með þig?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)