Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Mynd af gamalli "þrjátíuogfimmu"
Við grúsk á vefnum rakst ég á mynd sem þú hefur tekið af gamalli Fergusonvél og birtist hjá þér 13.09.06. Ég spyr hvort ég megi birta hana ( án endurgjalds) á síðunni www.ferguson-felagid.com en þar er reynt að safna ýmsu sem tengist sögu Fergusonvéla á Íslandi. Það merkilega við þessa vél er heimagerða? húddljósið enda vélin með ámoksturstækjum. Kveðja, Ragnar Jónasson fergusonfelag@gmail.com
Ragnar Jónasson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 3. jan. 2009
fallegar myndir
mikið rosalega ,,,,,tekur þú flottar myndir það flottasta sem ég hef séð kv. Agnes
Agnes (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 10. jan. 2008
Sæll og blessaður
Takk fyrir samþykkið :o) Ég er búin að fylgjast með myndunum hjá þér svona öðru hvoru. Mögnuð skot sem þú nærð oft. Kv Haddý Jóna
Hallfríður Jóna Jónsdóttir, mán. 8. okt. 2007
Gamli, góði gemsinn…
Sæll Ragnar Valsson sá myndina þína af þreytta trukknum fyrir einhverjum dögum. Þóttist þekkja gamlan GMC hertrukk en til að vera alveg viss -- áður en fornfræðingar færu að grufla í þessu, hafði ég samband við Þórodd vin minn Árnason á Neskaupstað sem hefur allt svona á hreinu. Og við erum samdóma; þetta er GMC og næstum örugglega árg. 1942. -- Bendi þér tam. á að bera hann saman við mynd af svona trukk á bls. 123 í bók minni, Saga bílsins á Íslandi 1904-2004. Með góðri kveðju -- Sig. Hreiðar
Sigurður Hreiðar, mán. 30. júlí 2007