Þriðjudagur, 2. desember 2008
Gamalt og gott
Oft man fólk eftir fyrsta bílnum sínum sem þeim langbesta sem það hefur nokkurn tíman ekið.
Ég man eftir manninum sem var að dásama gamla Ford sem pabbi hans átti á fyrrihluta síðustu aldar.
Það var svo gott að sitja í honum og það var svo gott að keyra hann.
Um síðustu aldamót fékk hann að keyra eins bíl.
Hann játaði það ekki fyrr en löngu síðar að það var vissulega gaman að keyra bílinn, en það var langt frá því að vera gott að keyra hann.
En hann stendur einþá við að það er enginn bíll flottari en gamli Ford sem pabbi hans átti á fyrrihluta síðustu aldar.
Bíllinn á myndinni tengist sögunni ekki á neinn hátt annan en að þetta er Ford frá fyrrihluta síðustu aldar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.