Þriðjudagur, 9. september 2008
Sveitahundar
Á öllum sveitabæjum eru hundar.
Hlutverk hundanna hefur yfirleitt verið að smala kindum og gelta á gesti.
Hundarnir halda sér svo í formi með því að elta bíla sem eiga leið um.
Á einum sveitabæ þótti bílaáhugi hundsins vera full mikill.
Til að halda hundinum heima var tekið á það ráð að binda hann við þakrennuna á húsinu.
Gekk það ágætlega þangað til mjólkurbíllinn kom.
Heyrðust þá þessir svaka skruðningar og læti. Lætin voru svo mikil að það heyrðist ekki geltið í hundinum.
Þegar heimilisfólkið leit út um gluggann sáu þau mjólkurbílinn keyra í burtu, hundinn á harðaspretti á eftir honum og þakrennan rétt á eftir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.