Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Botninum náð
Á síðustu öld, fyrir tíma malbiks og Hvalfjarðaganga þótti það mikið ferðalag að aka allan Hvalfjörðinn. Þótti það svo mikil þrekraun að ekki þótti ráðlegt að aka allan fjörðinn í einu heldur varð að stöðva a.m.k. einusinni á leiðinni.
Í Hvalfirði voru þrjár vegasjoppur til að taka á móti öllum þreyttu ferðalöngunum. Ferstikla, Þyrill og Botnskáli.
Sjálfum þótti mér nauðsynlegt að stoppa í Botni á leiðinni frá Reykjavík. Líklega vegna þess að það var fyrsta sjoppan á leiðinni úr bænum.
Núna er vegurinn farinn frá Botnskála, búið að loka og negla fyrir alla glugga.
Botninum náð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.