RFV - Hausmynd

RFV

Þríhjól, tvíhjól, einhjól

Fysta hjólið sem ég eignaðist var þríhjól. 

Þegar ég var svo orðin nógu stór fékk ég tvíhjól. 

Fyrst var tvíhjólið reyndar fjórhjól því það hafði tvö hjálparhjól.

Svo foru hjálparhjóli af og ég hef átt nokkur tvíhjól síðan.

Nú er spurningin hvort ég sé orðin nógu stór til að fá mér einhjól.

Einhjól

Þingvallavatn

Nýlega fór ég á Þingvelli. 

Í einu horni á Þingvallavatni er þessi hólmi.

Ég veit ekki hvað hann heitir en hann var þess virði að stoppa.

IMG_0948

Stíflan

Ég fer reglulega upp og niður Elliðaárdalinn.

Á nokkrum stöðum verð ég alltaf að stoppa horfa.

Það er með öllu ómögulegt fyrir mig að hjóla framhjá stíflunni án þess að fara yfir hana stoppa og horfa.

Sama úr hvorri áttinni eða á hvaða bakka ég er.

IMG 0204

Bak við girðingu

Í Nauthólsvík við hliðina á nýja Háskólanum í Reykjavík sá ég þetta hús.

Vel varið á bak við trygga girðingu.

Það hefur líklegast séð betri daga.

IMG_1028

Veggjakrot

Ég er á móti veggjakroti.

Ég er ekki vanur að sjá nokkuð jákvætt við veggjakrot.

Þrátt fyrir það hversu rangt þetta var þá var eitthvað rétt þarna.

IMG_1027

Úti á túni

Í miðri byggðinni á Álftanesi er tún.

Þar voru nokkrir hestar í mat.

IMG_0747

Krummi

Sitjandi á ljósastaur sá ég þennan krumma.

Svo sá hann eitthvað áhugavert og flaug í burtu.

Ég sá ekki hvað var svona áhugavert.  Ég var of upptekinn við að horfa á hann.

IMG_0715

Skarfasker

Í Hafnarfirði sá ég sker fullt af skörfum.

Þetta er alvöru skarfasker

IMG_0680

Turn til sölu

Árið 1925 fékk tékkinn Victor Lustig þá stórsnjöllu hugmynd að selja Eifel turninn í París. 

Turninn var þreytulegur í útliti.  Löngu kominn tími á að mála hann og mörgum var farið að þykja hann ljótur vegna þess.

Victor ákvað að boða sex brotajárnssala á fund þar sem hann tilkynnti þeim að nú ætti að rífa turninn og ákveðið hafi verið að bjóða þeim að kaupa brotajárnið sem kæmi af því.  Allir stukku þeir fegnir á tilboðið enda mikið magn af járni fyrir gott verð.

Þeir máttu samt ekki tala um þetta því þetta yrði að fara með leynd þangað til turninn yrði rifinn og þeir tæku hann í burtu.

Þeim var sagt að mæta snemma morguns skipta turninum á milli sín.

Þegar þeir mættu til að sækja turninn sinn komust þeir að því að það stóð ekki til að rífa turninn og að það hafi greinilega verið svindlað á þeim.

En til að halda andliti ákváðu þeir að segja ekki nokkrum manni frá þessu.

Þetta tókst svo vel hjá Victor að hann ákvað að gera aðra tilraun til að selja turninn mánuði síðar á sama hátt.  Bjóða öðrum sex brotajárnssölum að kaupa turninn á góðu verði.

Hann komst ekki upp með það því áður en hann náði að ganga frá viðskiptunum fór einn brotajárnssalinn til lögreglunnar.

Victor slapp undan þeim.

Ef turninn hefði í alvörunni verið seldur hefði mér þótt eitthvað vanta á þessa mynd.


Púsluspil

Í París fann ég þetta risa púsluspil.  Gert úr gleri.

Á eyju í Signu var svo byggð kirkja utanum púsluspilið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband