RFV - Hausmynd

RFV

Smalahundur

Um helgina skrapp ég í heimsókn á sveitabæ.

Þegar ég renndi í hlað kom smalahundurinn hlaupandi á móti bílnum geltandi og reyndi að reka bílinn rétta leið.

Strax og ég steig út úr bílnum umbreyttist geltandi smalahundurinn í vinalegan sveitahund sem vildi láta klappa sér.

IMG_8201

Veður

Veðrið var ekkert sérstakt í síðustu viku.

Rok og rigning flesta daga.


Gott í sjóinn

Í morgunn horfði ég út á sjó og sá hvíta öldutoppa. 

Það er augljóst merki um að það sé ekki gott í sjóinn.

Þessi mynd var ekki tekin í morgunn.

IMG_8132

Lýsing

Það þarf ekki alltaf að hafa ljós með sér til að lýsa upp myndirnar.

Tuglið, borgarljósin og bílljós á bíl sem áttu leið framhjá dugðu vel í þetta skipti.

IMG_8144

Esjan

Það er næstum því sama hvar ég er.

Næstum alstaðar sést Esjan

Oftast sé ég Esjuna úr fjarlægð.

Sjaldnar er ég nær.

IMG_8138

Hlið

Þrátt fyrir að skiltið á hliðinu sé ekki til að bjóða mann velkominn er eitthvað vinalegt við hliðið.

Þetta virkar a.m.k. ekki á mig sem hliðið að haugunum.

hlid

Höfnin

Á kyrru haustkvöldi þá er eitthvað róandi við að komast fara niður á höfn og skoða bátana.

Undanfarið hefur mér fundist það vera að færast líf í höfnina aftur.

Höfnin er ekki lengur bara geymslustaður fyrir báta.  Höfnin er orðin eitthvað meira.

IMG_8125

Verbúðir

Lengi vissi ég ekkert hvaða hús þetta voru.

Gömlu verbúðirnar Gersgötu.

Þar var ekkert við að vera.

Nú hefur líf verið að færast í verbúðirnar og vonandi heldur það áfram.

IMG_8114

Veturinn nálgast

Í morgunn tók ég eftir að frostrósirnar voru að springa út á bílrúðum og litlar stjörnur sáust á jörðinni.

Nú vantar bara aðeins meira frost og snjó.

IMG 0155


Er þetta hinn íslenski Þursaflokkur?

Á menningarnótt passaði ég mig á því að mæta á réttum tíma í Hljómskálagarðinn til að hlusta á hinn íslenska Þursaflokk leika alltof fá lög.

Ég kom mér fyrir á góðum stað rétt við sviðið tilbúin að hlusta á þá leika sitt þjóðlagaskotna progrokk og varð ekki fyrir vonbrigðum. 

Það eina sem skyggði á gleðina var að unga fólkið í kringum mig virtist ekki alveg vita hvaða hljómsveit væri þarna á sviðinu.

Einn unglingur við hliðina á mér leit á mig í miðjum Skriftargangi og spurði mig hvort þetta væri hinn íslenski Þursaflokkur.

Það eina sem ég gat huggað mig við, var að þrátt fyrir að vita vart hverjir spiluðu á sviðinu.  Þá líkaði honum það sem hann heyrði og ætlaði að hlusta á þá aftur.

IMG 7483

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband