RFV - Hausmynd

RFV

Tunna og hamar

Í byrjun vikunnar voru haldin Tunnumótmæli á Austurvelli.  Barið var á tunnur og skapaður sem mestur hávaði svo stjórnendur landsins fái að vita að hér búi fólk.

Áður var tákn mótmælanna pottur og sleif.

Í dag er táknið tunna og hamar

IMG 1027

Mótmæli

Í gær flutti forsætisráðherra stefnuræðu sína og ríkisstjórnar sinnar.

Á meðan fylltist Austurvöllur af fólki. 

Þúsundir mættu til að sýna samstöðu og láta ríkisstjórnina vita að tími raunhæfra aðgerða og árangurs sé runninn upp.  Við höfum ekki efni á að bíða lengur.

Ég mætti og ég var stoltur af því fólki sem mætti og lét í sér heyra með friðsömum hætti.

Verra þótti mér sá fámenni minnihluti sem grýtti þinghúsið svo stórsá á.

Á Austurvelli fór ekki á milli mála að vill þjóðin standa saman og óskar þess að ríkisstjórnin standi með þeim.


Krot eða list

Sumir hafa velt fyrir sér muninum á veggjalist og veggjakroti.

Í mínum huga er munurinn augljós. 

Það er veggjalist ef eigandi veggjarins gaf leifi fyrir krotinu en veggjakrot ef eigandi veggjarins gaf ekki leifi fyrir veggjalistinni.

Á þennan vegg var krotað með ljósi. 

IMG_0978

Mótmæli

Í gær var Alþingi okkar Íslendinga sett.

Austurvöllur fylltist af fólki að því tilefni. 

Þar var engin kominn til að fagna nýju þingi. 

Ég mætti líka og tók myndavélina með mér.


Rigningin góð?

Á síðustu öld var sungið um hversu rigningin væri góð.

Mér finnst rigningin oftast góð en stundum er fullmikið af góðum hlut.


Fuglabjarg í borg

Margir fuglar eiga heima í björgum við sjóinn.

Þegar fuglabjargið er ekki á staðnum frá náttúrunnar hendi nýta fuglarnir það sem mennirnir hafa gert.

IMG_8851

Garðskraut

Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt að rétta garðskrautinu.

Á meðan það er hægt stinga mold og blómum í skrautið, er það nóg.

IMG_5760

Norðurljós

Í gærkvöldi voru kjöraðstæður fyrir norðurljós.

Fyrir utan að það var skýjað.

nordurljos4
Þessi mynd var ekki tekin í gærkvöldi.


Hurð

Stundum velti ég því fyrir mér hvað sé á bak við hverjar dyr.

Á bak við þessar dyr ætti að það að vera augljóst.

Eða hvað?

IMG_9569

Miðnesheiði

Á Miðnesheiði er þorp sem áður var í útlöndum.

Nú er þorpið komið til Íslands.

Sum húsin fengu lit við flutninginn.

IMG_9683

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband