RFV - Hausmynd

RFV

Skíði

Í gömlu lagi segir "á skíðum skemmti ég mér tralallala".

Ég tek undir það.

Ég reyni að komast eins oft á skíði og ég get.

Svo eru þeir sem ekki kunna á skíði.


Þessi kann líklega ekki á skíði og fer þessvegna á bretti.

Strokkur

Ég hef farið með hópa að skoða Gullfoss og Geysi.

Eitt skiptið þegar við nálguðumst Geysi sagði ég hóp af þjóðverjum að Strokkur gysi alltaf á mínútunni 11:30.

Þá heyrðist eymdarhjóð aftan úr rútunni og mér bent á að klukkan væri 11:45.  Við værum búin að missa af gosinu.

Gos í Strokk

Á hraðferð

Í gærkvöldi var logn.

Lognið var á hraðferð.

Svo kom steypiregn og vatnið óx og óx.

Það var best að halda sig innandyra við myndatökur.

Núna er fínasta vorveður.  Sem væri ágætt ef það væri ekki vetur.


Strompur

Strompar á húsum hafa margvíslegan tilgang.

Upphaflega var þetta leiðin fyrir reykinn út en breyttist síðar í leið fyrir sjónvarpið inn.

Svo er þetta ákjósanlegur lendingarstaður fyrir smáfuglana.

IMG_3729

Önd

Öndin syndir á tjörninni og bíður eftir að brauðmolinn komi fljúgandi til sín.

IMG_3588

Fossar

Ég hef sagt það áður og ég á örugglega eftir að segja það aftur. 

Elliðaárnar og dalurinn sem þær renna um geyma óþrjótandi myndefni.

IMG_3651

Lending

Gæsin fann auðan blett í tjörninni og ákvað að lenda þar.

Hún þarf ekki mjög langa flugbraut.

IMG_3569

Hvað er í húsinu?

Á Akureyri sá ég þetta hús.

Í því er fataverslun, túristaverslun og gistiheimili.

En það var sama hvað ég leitaði ég fann ekki apótekið.

IMG_3157

Kötturinn í glugganum

Kötturinn horfði út um gluggann og virtist vera jafn áhugasamur um ljósmyndarann og ljósmyndarinn var um hann.

Áhugi hans var þó til að hann var kyrr á meðan.

IMG_3261

Björgum tónlistinni

Í dag fór ég ásamt rúmlega 700 öðrum að Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Borgarstjórnarmeirihlutinn ætlar sér að minnka stórlega framlög til tónlistarnáms í borginni.

Til að mótmæla því mættu tónlistarkennarar, tónlistarnemendur, tónlistarmenn og unnendur tónlistar.

Við mættum til að bjarga tónlistinni frá þeim örlögum sem borgarstjórinn ætlar henni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband