RFV - Hausmynd

RFV

Kveikt á súlu

Á haustinn falla laufin og það kveiknar á súlunni.

Ég er ekki viss hvort ljósið sjáist úr geimnum.

nordurljos

Í glugga

Á meðan við horfðum á húsið horfði einhver út um gluggann á okkur.

IMG 3330

Gagnlegt skilti

Ég held að girðingin ein og sér seigi það sama og skiltið.

IMG 3430

Í takt

Á meðan forsætisráðerra flutti stefnuræðu og þingmenn ræddu um þá sömu ræðu stóð fólkið fyrir utan og sló taktinn.

Svo er bara að vona að takturinn hafi skilað sér í gegnum veggina.


Aðgerðaleysi og aðgerðum mótmælt.

Um helgina var aðgerðum og aðgerðaleysi stjórnvalda mótmælt.

Í kvöld stefnir í að aðgerðaleysi og aðgerðum stjórnvala verði mótmælt.

Það er kominn tími til að ríkisstjórnin hætti þeim aðgerðum sem verið er að mótmæla og grípi til aðgerða í stað aðgerðaleysis.

Umfram allt er kominn tími á að stjórnvöld hlusti á þá sem byggja landið.

IMG 3126

Þingsetning

Í dag fór fram setning Alþingis Íslendinga.

Fjöldi fólks mætti á Austurvöll og lét skoðun sína í ljós.

Vonandi það verði hlustað.


Þingsetning

Á morgunn verður Alþingi Íslendinga sett.

Ég efast um að nokkur muni mæta til að sýna ríkisstjórninni stuðning.

En ég vona bara að fólk láti ekki kappið bera fegurðina ofurliði.


Hálf fullur

Sumir vilja meina að turninn sé hálftómur.

Ég vil meina að hann sé hálffullur.

turn

Undarlegt náttúrufyrirbrigði

Í dag sá ég náttúrufyrirbrigði sem ég hélt að væri ekki til á Íslandi.

Ég sá regn falla lóðrétt.

Það hafði ég bara séð í útlöndum fram að þessu.


Þetta regn er útlenskt

Umferð

Á hverjum degi horfi ég á þunga bílaumferð. 

Það er alltaf gott að geta hjólað framhjá henni.

IMG_9739

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband